
Salaskóli
Salaskóli er staðsettur í Salahverfi, í Leirdal, sem liggur norðan við Rjúpnahæð. Skólinn býr við afbragðsgóða aðstöðu. Húsnæði skólans er hlýlegt og gott og skólinn er vel búinn kennslugögnum og tækjum. Við hlið skólans er íþróttamiðstöðin Versalir og þar eru íþróttasalir og sundlaugar sem skólinn hefur afnot af.
Umhverfi skólans er fjölbreytt og gefur mikla möguleika til fjölbreyttrar kennslu. Skammt frá skólanum er útivistarsvæði sem er notað í útikennslu og einnig er stutt í bæði Elliðavatn og Vífilstaðavatn. Skólalóðin er hönnuð með tilliti til útikennslu en hún er fjölbreytt með völlum og leiktækjum.
Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og samstarf en allt starf skólans tekur mið af þeim.

Náms- og starfsráðgjafi - Salaskóli
Við leitum að náms- og starfsráðgjafa í hóp frábærs starfsfólks í Salaskóla
Náms- og starfsráðgjafi óskast í Salaskóla!
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Í Salaskóla er góður starfsandi og starfsumhverfi gott. Kennarar vinna saman í teymisvinnu við undirbúning og skipulag skólastarfsins og annað starfsfólk kemur á þverfaglegan hátt að samstarfi um málefni nemenda. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín við nám og leik og að þeim líði vel í skólanum. Salaskóli var stofnaður árið 2001 og nemendur eru um 580 í 1.-10. bekk. Við skólann starfa ríflega 100 starfsmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
•Menntun og leyfisbréf í náms- og starfsráðgjöf
• Vilji og geta til þverfaglegs teymissamstarfs
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfileikar og samstarfshæfni
• Lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna
• Stundvísi, þolinmæði og umburðarlyndi
Auglýsing birt4. janúar 2023
Umsóknarfrestur18. janúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Sjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar