

Náms- og starfsráðgjafi
Tækniskólinn auglýsir starf náms- og starfsráðgjafa í 100% stöðu frá ágúst 2026. Leitað er að einstaklingi með góða reynslu og sem hefur brennandi áhuga á velferð nemenda. Skilyrði er að umsækjendur hafi háskólamenntun í náms- og starfsráðgjöf og leyfisbréf í faginu.
-
Veita nemendum Tækniskólans náms- og starfsráðgjöf í samræmi við bestu starfshætti í faginu.
-
Vinna með hópi náms- og starfsráðgjafa Tækniskólans og öðru starfsfólki í innri skólaþjónustu og fara eftir þeim verkferlum sem unnið er eftir innan skólans.
-
Vera stjórnendum og kennurum innan handar með faglega ráðgjöf tengda nemendum og velferð þeirra.
-
Háskólamenntun og leyfisbréf í náms- og starfsráðgjöf
-
Áreiðanleiki, þjónustulipurð, jákvætt viðhorf og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Brennandi áhugi á að vera í samskiptum við og vinna með ungu fólki
-
Mjög góð tungumálakunnátta - íslenska, enska og fleiri tungumál kostur
-
Metnaður, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
-
Áhugi og þekking á starfsnámi æskileg
-
Reynsla af starfi í náms- og starfsráðgjöf innan framhaldsskóla æskileg
-
Reynsla af og áhugi á málefnum tengdum minnihlutahópum, s.s. innflytjendum
Íslenska
Enska