

Móttökufulltrúi
Við erum að leita að hlýlegum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf móttökufulltrúa hjá Sunnu – frjósemismiðstöð. Um er að ræða 100% starf í dagvinnu.
Móttökufulltrúi Sunnu þarf að hafa mikinn áhuga á að vinna með fólki og veita skjólstæðingum okkar úrvalsþjónustu. Viðkomandi mun vinna í fámennu en öflugu teymi við uppbyggingu leiðandi fyrirtækis á sviði meðferða við ófrjósemi.
Sunna opnar formlega næsta haust og hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda við að eignast barn.
Um fyrirtækið
Sunna – frjósemismiðstöð mun opna á haustmánuðum í Urðarhvarfi 8, Kópavogi.
Sunna mun bjóða upp á alla þá þjónustu sem fylgir meðferðum við ófrjósemi í húsnæði sem er sérhannað fyrir þarfir skjólstæðinga.
Við byggjum á traustum grunni þar sem áratuga reynsla á sviði tæknifrjóvgana blandast nýjustu þekkingu og tækjabúnaði.
- Taka á móti skjólstæðingum okkar af alúð og nærgætni
- Svörun símtala og tölvupósta og önnur móttökustörf
- Aðstoð við umönnun skjólstæðinga okkar
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Framúrskarandi samskiptafærni og hlýlegt viðmót
- Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
- Líkamsræktarstyrkur
Íslenska
Enska










