
Festi
Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi hvert á sínum markaði; matvöru-, raftækja-, lyfja- og heilsuvöru-, eldsneytis-, raforkusölu- og þjónustustöðvamarkaði. Fasteigna- og vöruhúsarekstur og kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af starfsemi samstæðunnar.
Móðurfélagið Festi á dótturfélögin Krónuna sem rekur samnefndar matvöruverslanir, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Lyfju sem starfrækir 45 apótek og útibú, Yrkir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.

Mötuneyti Festi
Festi leitar að jákvæðum, drífandi og samviskusömum starfsmanni til starfa í mötuneyti félagsins á Dalvegi. Um er að ræða 50% starf í eldhúsi og matsal, þar sem rúmlega 200 manns eru þjónustaðir. Viðkomandi þarf að hafa gott viðmót, drifkraft og ríka þjónustulund. Vinnutími kl. 8-15 á mánudögum, kl. 11-15 þriðjudaga til fimmtudags, frí á föstudögum.
Helstu verkefni:
- Framreiðsla á elduðum mat
- Móttaka á vörum og frágangur
- Áfylling
- Þrif á sal og uppvask
- Aðstoð við innkaup
- Önnur tilfallandi verkefni í eldhúsi
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í mötuneyti, eldhúsi eða sambærilegu starfi kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Vandvirkni og snyrtimennska
- Geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Festi, [email protected].
Auglýsing birt12. desember 2025
Umsóknarfrestur20. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Matráður - Reykjanesbær (tímabundið í 12 mán)
Íslandsbanki

Fabrikkan- Vaktstjóri í sal
Hamborgarafabrikkan

Alhliða hótel & veitingastarf
Hótel Hvolsvöllur

Vaktstjóri í sal í 100% starf - La Trattoria, Smáralind
La Trattoria

Aðstoðarmatráður óskast
Furugrund

Lux veitingar óskar eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstakling í mötuneyti
Lux veitingar

Regular part-time waitress/waiter
Flame Restaurant

Þjónn í hlutastarf
Sumac Grill + Drinks

Þjónusta í sal fullt starf-vaktavinna
Spíran

Matreiðslumaður / Matráður
IKEA

Brand restaurant leitar að nýjum liðsfélögum
Brand Vín & Grill ehf.