Atmos Cloud
Atmos Cloud
Atmos Cloud

Microsoft 365 og Azure Geimfarar

Við leitum að reyndum geimförum með þekkingu á skýjalausnum, geimförum með brennandi áhuga á öryggi, sjálfvirkni og öðrum lausnum innan Microsoft 365 og Azure.

Sem Atmos geimfari ert þú hluti af teymi sem vinnur að áhugaverðum og krefjandi verkefnum í íslensku, útlensku og geimlensku umhverfi sem snúa að skýjalausnum.

Atmos Cloud bíður uppá sveiganleika bæði á vinnutíma og vinnuaðstöðu.

Fríðindi í starfi
  • Einstaklings og hópa hvatakerfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Sveiganleiki á vinnuaðstaðu
  • Frábær vinnuaðstaða og skemmtilegt starfsfólk
  • Kaffi, létt snarl og niðurgreiddur hádegismatur
Menntunar og hæfniskröfur
  • Microsoft 365 
  • Microsoft Azure
  • Flutningur á tækniinnviðum í Microsoft skýin
  • Daglegur rekstur upplýsingakerfa í Microsoft 365 og Azure
  • Eftirlit með kerfum viðskiptavina og viðbrögð við rekstraratvikum
  • Hafa tæknilega sýn, frumkvæði og leiðtogahæfileika
  • Reynsla af Microsoft öryggismálum
  • Reynsla af sjálfvirknivæðingu er mikill kostur (t.d. Terraform, Power Platform eða annað)
  • Frábær samskiptafærni og brennandi áhugi fyrir krefjandi verkefnum
  • Jákvæðni
  • Bílpróf (bíl til umráða)
  • Önnur menntun og/eða reynsla sem nýtist útí geimnum

Atmos Cloud var stofnað snemma árs 2020 með það að markmiði að fylla í skarð á markaðnum fyrir faglega þjónustu á Microsoft skýjalausnum. Frá upphafi höfum við lagt mikla áherslu á öryggi, skalanleika og hagkvæmni í öllum okkar lausnum.

Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki sem tileinkar sér menningu stöðugrar umbóta og lærdóms. Traust og áreiðanleiki er aðalsmerki okkar og við tryggjum vönduð vinnubrögð á settum tíma. Góð þjónustulund og léttleiki í samskiptum okkar skapar velkomið umhverfi þar sem öllum líður vel. Allir hafa rödd og skoðanir allra virtar. Við þjónustum alla og elskum alla, við erum geimfarar ekki geimverur.

Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Við viljum einfalda rekstur fyrirtækja, auka skilvirkni, öryggi og kostnaðarvitund.

Sótt er um starfið á Alfreð. Umsóknarfrestur er til og með 26.nóv. (Ráðið verður við fyrsta tækifæri og mögulega fyrir lok umsóknartíma.)

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Nánari upplýsingar um starfið veitir Viðar Þorláksson, framkvæmdarstjóri Atmos Cloud. (vidar@atmos.is)

Auglýsing birt12. nóvember 2024
Umsóknarfrestur26. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Víkurhvarf 3, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar