
Merchant Operations Associate
Wolt er finnskt tæknifyrirtæki og þar til nýlega höfum við verið þekktust fyrir matarsendingar. Í appinu okkar eða á vefsíðu geta viðskiptavinir pantað uppáhalds máltíðir sínar frá veitingastöðum í nágrenninu og annað hvort sótt matinn sjálfir eða fengið hann afhentan af sendlum okkar.
Hins vegar bjóðum við ekki eingöngu upp á heimsendingu á mat heldur einnig mikið úrval af vörum, svo sem frá matvöruverslunum, blómaverslunum, leikfangaverslunum og öðrum spennandi aðilum.
Sem Merchant Operations Associate munt þú vinna með bæði veitingastöðum og verslunaraðilum (merchants). Til að reka Wolt-viðskipti sín með farsælum hætti þurfa samstarfsaðilar okkar daglega á aðstoð að halda, meðal annars við að uppfæra matseðla og vöruúrval, sem og að tryggja að allur Wolt-búnaður sé starfhæfur.
Helstu verkefni felast í að tryggja að vöruúrval sé uppfært á tímanlegan og nákvæman hátt, ásamt því að aðstoða samstarfsaðila beint í gegnum síma ef búnaður þeirra bilar. Markmið okkar er að gera samstarfið við Wolt eins einfalt og mögulegt er fyrir samstarfsaðila, jafnframt því að leiðbeina þeim í átt að aukinni sjálfsafgreiðslu og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar og verkfæri til að koma í veg fyrir vandamál í framtíðinni.
Stór hluti starfsins felst í nákvæmni og gæðum og leitum við að einstaklingi sem hefur áhuga á að bæta árangur sinn stöðugt og auka skilvirkni í starfi.
Í stuttu máli verður þú lykilaðili þegar kemur að matseðlum/vörulistum og Wolt-búnaði og gegnir mikilvægu hlutverki í að viðhalda háum gæðastöðlum og skilvirkni. Starfið felur einnig í sér að byggja upp og viðhalda góðum viðskiptatengslum við samstarfsaðila og samstarfsfólk hjá Wolt.
Við hverju máttu búast
-
Ábyrgð á að búa til, uppfæra og viðhalda matseðlum og vöruúrvali fyrir alla virka samstarfsaðila á Wolt-vettvangnum og tryggja að bæði texti og myndmál endurspegli vörumerki Wolt.
-
Umsjón með þjónustu í öllum málum tengdum búnaði til að tryggja hámarksárangur í rekstri.
-
Leiðbeina samstarfsaðilum í átt að aukinni sjálfsafgreiðslu, fræða þá um verklag og benda á bestu leiðir í samstarfi þeirra við Wolt þegar kemur að vöruúrvali.
-
Deila bestu starfsvenjum innan teymisins og stuðla að umbótum á ferlum.
Væntingar okkar
-
Góð íslensku- og enskukunnátta til að geta átt samskipti við samstarfsaðila og unnið með vöruúrval á báðum tungumálum.
-
Góð tæknikunnátta og hæfni til að læra fljótt og aðlaga sig að nýjum verkefnum og aðferðum.
-
Reynsla af Excel eða Google Sheets er kostur.
-
Rík þjónustulund og góð samskiptafærni.
-
Reynsla úr svipuðu starfi í þjónustu er kostur.
-
Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.
-
Frumkvæði, jákvætt viðhorf og drifkraftur til að bæta ferla og auka gæði í starfi.
Íslenska
Enska










