
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Meiraprófsbílstjóri - Höfuðborgarsvæðið
Við leitum að öflugum, áreiðanlegum og jákvæðum einstaklingi með meiraprófsréttindi í akstursdeildina hjá okkur í Hafnarfirði. Við erum bæði að leita eftir aðila sem er með meirapróf C og CE réttindi, eins er kostur að hafa kranaréttindi.
Hlutverk meiraprófsbílstjóra er að þjónusta viðskiptavini okkar við losun á ílátum frá fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur, lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C og CE
- Kranaréttindi er kostur
- Jákvæðni og áreiðanleiki
- Þjónustulund og samskiptahæfni
- Íslensku- og/eða enskukunnátta
Auglýsing birt8. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf CMeirapróf CESamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Fjarðabyggð - Austurland: Meiraprófsbílstjóri óskast á ruslabíl/krókabíl( C driver wanted
Íslenska gámafélagið ehf.

Steypudælubílstjóri (Concrete Pump Operator)
Steypustöðin

Gámabílstjóri með meirapróf / Container truck driver (C&CE)
Torcargo

Self-Employed Driver-Guides (On-Call / Freelance)
Easy Transfer

Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip

Meiraprófsbílstjóri á Akureyri
Samskip

Bílstjóri á sendibíl
Sendibílar Íslands

Kranabílstjóri á nýjan kranabíl
Ísbor ehf

landsbyggðarstrætó Höfn-vík
GTS ehf

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Bílstjóri - Sölufólk Sómi
Sómi

Verkstjóri - Húsavík
Terra hf.