Skeljungur ehf
Skeljungur ehf
Skeljungur ehf

Meiraprófsbílstjóri

Vegna aukinna umsvifa óskar Skeljungur að ráða meiraprófsbílstjóra til starfa á höfuðborgarsvæðinu til að sinna afgreiðslu, dælingu og dreifingu eldsneytis. Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem falla undir starfssvið dreifingar Skeljungs.

Skeljungur sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíu, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er einnig hluti af starfseminni.

Hjá Skeljungi starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og vijum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildum okkar, við erum jákvæð, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meirapróf C og CE er skilyrði
  • ADR réttindi
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af akstri er kostur
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
  • Samviskusemi, stundvísi og reglusemi
Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyjaslóð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar