

Meðferðaraðili / Spa & Ritual Therapist
*English version below
Góð upplifun byrjar með þeim sem leiðir þig inn í hana. Í okkar einstaka baðhúsi fara gestir í gegnum vel úthugsað ferðalag sem byggir á íslenskri baðmenningu, tengingu við náttúruna og norrænum hefðum. Í boði verða meðferðir á borð við slakandi nudd, endurnærandi andlits- og líkamsmeðferðir ásamt flot- og vatnsmeðferðum.
Við leitum að meðferðaraðilum sem hafa ánægju af því að vinna með fólki og skapa rými fyrir slökun og vellíðan. Sem meðferðaraðili gegnir þú lykilhlutverki í upplifun gesta. Með fagmennsku, nærveru og hlýju viðmóti hjálpar þú gestum að tengjast augnablikinu og njóta ferðalagsins á eigin forsendum.
Þú verður hluti af teymi sem opnar og mótar nýjan áfangastað í íslenskri ferðaþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæma nudd-, andlits- og líkamsmeðferðir.
- Leiða gusur, flotmeðferðir og aðrar upplifanir baðhússins.
- Taka á móti gestum og skapa hlýlegt, rólegt og faglegt umhverfi.
- Leiðbeina gestum og fylgja í gegnum meðferðir, ritual-ferðalög og upplifunarsvæði baðhússins.
- Undirbúa meðferðarrými og tryggja að aðstaða sé hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir hvern gest.
- Vinna náið með öðru starfsfólki að því að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
- Fylgja verklagi, gæðakröfum og öryggisstöðlum fyrirtækisins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af meðferðum, þjónustu heilsulinda eða sambærilegum störfum er kostur.
- Áhugi á vellíðan, heilsu og þeirri upplifun sem skapast þegar fólk gefur sér tíma til að vera.
- Góð enskukunnátta er nauðsynleg. Íslenska og önnur tungumál eru kostur.
- Hlý nærvera, faglegt viðmót og rík þjónustulund.
- Stuðla að rólegu, hlýlegu og yfirveguðu andrúmslofti í baðhúsinu.
- Hæfni til að skapa ró og traust í samskiptum við ólíka gesti.
- Sjálfstæði, ábyrgð og góð skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Hjá Reykjaböðum trúum við því að góð upplifun byggist á litlu hlutunum. Hlýlegri móttöku, rólegri nærveru og fólkinu sem veit hvenær á að leiðbeina og hvenær á að gefa rými. Þitt framlag hjálpar gestum að hægja á sér, finna jafnvægi og upplifa Reykjaböð eins og þeim er ætlað að vera.
_______________________________________________________________________________________________
Spa & Ritual Therapist
A great experience begins with the people who guide you into it. In our unique bathhouse, guests embark on thoughtfully designed journeys inspired by Icelandic bathing culture, a connection to nature, and Nordic traditions. Experiences include relaxing massages, restorative facial and body treatments, as well as flotation and water-based therapies.
We are looking for Spa & Ritual Therapists who enjoy working with people and creating space for rest, recovery, and wellbeing. As a Spa & Ritual Therapist, you play a key role in the guest experience. Through professionalism, presence, and a warm approach, you help guests slow down, connect with the moment, and experience each journey at their own pace.
You will be part of a team opening and shaping a new destination in Icelandic tourism.
Key Responsibilities
- Perform massage, facial, and body treatments.
- Lead sauna rituals (gusur), flotation experiences, and other bathhouse journeys.
- Welcome guests and help create a warm, calm, and professional environment.
- Guide guests through treatments, ritual journeys, and the various experiences within the bathhouse.
- Prepare treatment rooms and ensure facilities are clean, well-presented, and ready for each guest.
- Work closely with colleagues to create an exceptional guest experience.
- Follow company procedures, quality standards, and safety protocols.
- Carry out other duties as required.
Qualifications and Requirements
- Experience in treatments, spa services, or similar roles is an advantage.
- A genuine interest in wellbeing, health, and the value of creating space for people to slow down and simply be.
- Strong English language skills are required. Icelandic and other languages are an advantage.
- Warm presence, professional attitude, and a strong service mindset.
- Ability to contribute to a calm, welcoming, and thoughtful atmosphere throughout the bathhouse.
- Ability to create a sense of trust and ease for a diverse range of guests.
- Self-motivated, responsible, and well-organized.
- Ability to work both independently and as part of a team.
At Reykjaböð, we believe that great experiences are built on the little things. A warm welcome, a calm presence, and the people who know when to guide and when to give space. Your contribution helps guests slow down, find balance, and experience Reykjaböð as it was meant to be.
Við leitum að einstaklingum sem geta hafið störf sem fyrst.
Sendu okkur upplýsingar um þig ásamt ferilskrá í gegnum umsóknargátt Alfreðs.
Unnið er úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
We are seeking candidates who can begin work at the earliest opportunity.
Send us your application via Alfred, including your CV.
Applications will be reviewed as they are received.
We welcome applications from all qualified candidates, regardless of gender, background, or origin. All applications and inquiries will be treated as confidential and will be responded to once the recruitment process is completed.
Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind sem opnar sumarið 2026 við rætur Reykjadals í Hveragerði. Við bjóðum upp á fjölbreytt upplifunarsvæði þar sem hver og einn finnur sitt athvarf frá öllum æsingnum. Hér getur þú notið augnabliksins, endurnærst í heitum lindum og fundið orkuna sem býr í íslenskri náttúru, hvort sem það er á björtum sumarkvöldum eða undir dansandi norðurljósum. Okkar markmið er að skapa eftirminnilega upplifun í einstöku umhverfi þar sem stórbrotin náttúrufegurð, kraumandi jarðhiti, íslensk menning og vellíðan renna saman.
Reykjaböð Hot Springs is a new natural hot spring and wellness retreat opening in summer 2026 at the roots of Reykjadalur in Hveragerði. We offer a range of experience areas where each guest can find their own sanctuary from the noise of everyday life. Here, you can slow down and be present in the moment, rejuvenate yourself in warm springs, and feel the energy that lives in Icelandic nature, whether on bright summer evenings or beneath dancing northern lights. We aim to create a memorable experience in a unique setting where dramatic natural beauty, living geothermal heat, Icelandic culture, and wellbeing come together.
Enska
Íslenska