

Matreiðslumaður / Matráður
IKEA leitar að hörkuduglegum matreiðslumanni í frábæra teymið okkar á veitingasviði. Á veitingasviði IKEA starfar fjölbreyttur hópur starfsmanna við ýmis störf sem snúa að framleiðslu og þróun veitinga sem eru í sölu á veitingastað og kaffihúsi verslunarinnar.
Hjá IKEA starfar fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“. Á veitingasviði IKEA er lögð áhersla á samheldni, jákvætt andrúmsloft og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina.
Starfssvið:
- Undirbúningur, framreiðsla, og matreiðsla á veitingastað IKEA
- Vöruþróun fyrir veitingasvið í samvinnu við stjórnendur
- Gæðaeftirlit á matvælum
- Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
- Menntun í matvælaiðnaði eða öðru sambærilegu er skilyrði
- Starfsreynsla úr matvælageiranum er skilyrði
- Þekking á matvælaöryggi og almennt góðum starfsháttum við framleiðslu matvæla
- Sjálfstæði og drifkraftur
- Lipurð í samskiptum og jákvæðni
- Færni til að vinna undir álagi
- Almenn tölvukunnátta
Vinnutími er alla jafna frá kl. 9-17 virka daga og stakir helgidagar eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember. Gera má ráð fyrir að unnið sé úr umsóknum fljótlega eftir að þær berast.
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðssvið IKEA, [email protected] og Jón Ingi Einarsson, [email protected]
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum.
- Aðgengi að sumarbústað til einkanota.
- Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti og salatbar.
- Ávextir og hafragrautur í boði.
- Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila.
- Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
- Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.
- Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.
- Skemmtilegir vinnufélagar.
- Afsláttur af IKEA vörum.
Íslenska










