Lux veitingar
Lux veitingar

Matreiðslumaður hjá lux veitingum

Lux veitingar óskar eftir öflugum og áreiðanlegum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi eldhússtörf

Við leitum að duglegum og ábyrgðarfullum starfsmanni sem hefur metnað til að taka þátt í vexti og uppbyggingu veisluþjónustu í fremstu röð.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í eldhúsi Lux veitinga og er tilvalið fyrir einstakling sem hefur ástríðu fyrir matargerð, góðu skipulagi og vinnur vel undir álagi.

Helstu verkefni:

  • Undirbúningur og frágangur veisluþjónustu

  • Almenn eldhússtörf og aðstoð við matreiðslu

  • Frágangur og þrif eftir viðburði

  • Vinna með fagfólki í skemmtilegu og kraftmiklu umhverfi

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir eftirfarandi eiginleikum:

  • Dugnaður, nákvæmni og jákvætt hugarfar

  • Brennandi áhugi á matargerð og veitingum

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og lipur í samskiptum

  • Reynsla úr eldhúsi eða matvælavinnslu er mikill kostur

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og spennandi starf í ört vaxandi fyrirtæki

  • Góðan starfsanda og samheldið teymi

  • Möguleika á frekari starfsþróun innan fyrirtækisins

Ef þú hefur áhuga á matargerð og vilt vera hluti af framsæknu veitingateymi – þá viljum við heyra frá þér!

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í matreiðslu
  • stundvís
  • Góð íslensku / ensku kunnátta
Auglýsing birt14. apríl 2025
Umsóknarfrestur14. maí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bitruháls 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Sveinspróf
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar