
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð
Í Barmahlíð starfa 14 manns á vöktum.
Heimilið hefur pláss fyrir 14 í hjúkrunarrýmum og 2 í dvalarrýmum.
Hugmyndafræði Barmahlíðar er að efla sjálfstæði heimilismanna með umhyggju og jafnræði að leiðarljósi. Vera styðjandi og viðhalda sjálfsbjörg og virðingu. Hafa heimilishald með heimilisbrag.
Matráður við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð
Vilt þú stuðla að betra lífi fólks?
Laust er til umsóknar starf matráðs við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum.
Um er að ræða 100% starf sem er laust nú þegar.
Í starfinu fellst m.a. að útbúa máltíðir fyrir heimilisfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar, þar sem matmálstímar skipta miklu máli og eru með betri stundum dagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með eldhúsi og starfsfólki þess
- Þátttaka í heimilislífi Barmahlíðar þar sem lögð er áhersla á vellíðan heimilisfólks
- Útbúa morgunmat, millimál, hádegisverð og léttan kvöldverð þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og hollustu.
- Verkstjórnun annars starfsfólks mötuneytis og umsjón með skipulagi starfs.
- Skipulag og umsjón með þrifum á matsal og í mötuneyti.
- Innkaup á matvöru, áhöldum og tækjum í mötuneyti
- Skipulag á matseðlum, allt að mánuð fram í tímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla á sviði matargerðar.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð skipulagshæfni
- Metnaður og áhugi á matargerð
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
- Menntun í matargerð er kostur
- Reynsla af starfi á hjúkrunarheimili er kostur
- Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæði í störfum
Fríðindi í starfi
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.
Auglýsing birt14. mars 2025
Umsóknarfrestur31. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Barmahlíð , 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vilt þú matreiða í sumar?
EFLA hf

Matreiðslumaður/Matartæknir - Chef Agent
NEWREST ICELAND ehf.

Leikskólinn Bjartahlíð - mötuneyti
Skólamatur

Sumarstarfsfólk í eldhús
Hrafnista

Starfsmaður í eldhús
Ráðlagður Dagskammtur

Aðstoð í eldhúsi /Kitchen assistant pizza & salad station
Public deli ehf.

Starfsmaður í býtibúr
Landspítali

Hlutastarf í mötuneyti
Íslensk erfðagreining

Matreiðslumaður (Chef) óskast til starfa
Northern Light Inn

Starfsfólk á veitingastað /Restaurant employees
Public deli ehf.

Canteen Supervisor / Matráður
Travel Connect

Starf í sérfæðisdeild
Skólamatur