Origo hf.
Origo hf.
Origo er nýsköpunarfyrirtæki sem veitir þríþætt framboð í upplýsingatækni: rekstrarþjónustu, hugbúnað og notendabúnað. Origo á rætur sínar að rekja allt til ársins 1899, frá skrifstofuvélum og fyrstu tölvunni hefur fyrirtækið vaxið og dafnað í áranna rás. Við trúum að „betri tækni bæti lífið“ og erum stöðugt að þróa lausnir með það markmið að tryggja árangur viðskiptavina okkar. Viðskiptavinir Origo eru yfir 30.000 talsins er leiðandi samstarfsaðili fyrirtækja, opinberra aðila og einstaklinga á Íslandi. Hjá Origo starfa yfir 500 manns heima og að heiman. Það er stefna Origo að vera fyrsta val hjá einstaklingum sem trúa því að betri tækni bæti lífið. Við kunnum að meta einlægni, forvitni og lausnarmiðað hugarfar í bland við alls konar tæknifærni. Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvors annars og þróast áfram. Saman breytum við leiknum! 
Origo hf.

Matráður / matreiðslumaður

Hefur þú áhuga á fjölbreyttri matargerð?

Origo leitar eftir matráði eða matreiðslumanni í tímabundið starf í þrjá mánuði vegna afleysingar og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Origo rekur framsækið mötuneyti með fjölbreyttri þjónustu fyrir starfsfólk. Meðal þess sem boðið er upp á í mötuneyti fyrirtækisins er morgunverður alla daga og heitur hádegismatur sem uppfyllir fjölbreyttar þarfir starfsfólks. Þar að auki kemur mötuneytið að því að útbúa veitingar fyrir móttökur og kynningar fyrir viðskiptavini eða starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og matreiðsla
Innkaup og pantanir
Frágangur og þrif
Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði matreiðslu og reynslu af sambærilegu starfi kostur
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni og góð samskiptahæfni
Góð íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð18. september 2023
Umsóknarfrestur25. september 2023
Starfstegund
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.