
Heimaleiga
Heimaleiga er hratt vaxandi fyrirtæki sem þjónustar 200 hótelíbúðir í skammtímaleigu. Meðal helstu verkefna Heimaleigu má nefna Sif Apartments, Blue Mountain Apartments og Iceland Comfort Apartments.
Markaðsstjóri
Heimaleiga leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til þess að leiða markaðsstarf fyrirtækisins. Markaðsstjóri sér um uppbyggingu vörumerkja fyrirtækisins ásamt umsjón með öllu markaðsstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af markaðsmálum.
Þekking og reynsla af vefumsjón, stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum.
Reynsla af greiningum og Google Analytics.
Reynsla af gerð kynningarefnis og textagerð.
Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri.
Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Áætlanagerð og stefnumótun á sviði markaðsmála.
Uppbygging og markaðssetning vörumerkja.
Stafræn markaðssetning og vefumsjón, ásamt textagerð og ábyrgð á öllu kynningarefni.
Umsjón með samfélagsmiðlum, þar með talið auglýsingum.
Sölu- og markaðsgreiningar, greining markhópa ásamt leitarvélabestun.
Google Analytics og greiningar.
Yfirumsjón með framsetningu íbúða á sölurásum, Booking.com, Airbnb o.fl.
Þátttaka í stefnumótun og hugmyndavinnu.
Ýmis önnur tilfallandi verkefni.
Auglýsing birt16. september 2022
Umsóknarfrestur26. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
