

Markaðsfulltrúi
Starfslýsing
Við leitum að framúrskarandi liðsmanni í markaðsteymi Rekstrarfélags Kringlunnar. Við leitum að einstaklingi sem er metnaðarfullur og með hæfileika, reynslu og menntun sem hæfir starfinu. Sérstök áhersla er lögð á lipurð og færni í mannlegum samskiptum auk þess sem reynsla og kunnátta á markaðssetningu samfélagsmiðla er skilyrði.
Um er að ræða 100% starf til framtíðar í vinsælustu verslunarmiðstöð landsins þar sem allt iðar af lífi og enginn dagur er eins.
Hæfniskröfur
- Góð skipulagshæfni
- Markaðssetning á samfélagsmiðlum
- Viðburðastjórnun
- Framúrskarandi íslenskukunnátta í rituðu og mæltu máli
- Góð enskukunnátta
- Færni til að vinna undir álagi í hröðu umhverfi
- Sveigjanleiki í starfi
- Háskólamenntun
Verkefni í markaðsdeild Rekstrarfélags Kringlunnar eru fjölbreytt og oft margir boltar á lofti í einu. Helstu verkefni eru umsjón og rekstur öflugra samfélagsmiðla Kringlunnar, skipulag og framkvæmd viðburða sem og sérstök markaðsátök. Samskipti eru lykilþáttur í starfinu og áhersla lögð á góð samskipti við rekstraraðila í Kringlunni. Þáttaka í teymisvinnu vegna stafrænnar þróunar og umsjón kerfa því tengdu.
- Reynsla af markaðsstarfi
- Markaðssetning á samfélagsmiðlum
- Viðburðastjórnun
- Góð skipulagshæfni
- Framúrskarandi íslenskukunnátta í rituðu og mæltu máli
- Góð enskukunnátta
- Færni til að vinna undir álagi í hröðu umhverfi
- Háskólamenntun













