

Mannauðsstjóri - Iceland Travel
Iceland Travel er hluti af Travel Connect sem er eitt af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins. Hjá okkur starfa um 400 frábærir einstaklingar á skrifstofum okkar á Íslandi, Svíþjóð, Skotlandi og Þýskalandi.
Við leitum að jákvæðum og árangursdrifnum leiðtoga til að ganga til liðs við öflugt teymi okkar. Viðkomandi mun bera ábyrgð á mannauðsmálum Iceland Travel og gegna lykilhlutverki í að móta jákvæða og framsækna vinnustaðamenningu. Mannauðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðs og er hluti af 14 manna People & Culture sviði.
Helstu verkefni
-
Stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu með áherslu á vellíðan og þátttöku
-
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
-
Fylgja eftir og samræma verklag varðandi mannauðstengd verkefni
-
Móta og fylgja eftir mannauðsstefnu fyrirtækisins
-
Leiða mannauðsverkefni og móta ársfjórðungsáætlanir í takt við stefnu Travel Connect
Hæfniskröfur
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
-
Framúrskarandi leiðtogahæfileikar
-
Farsæl reynsla af mannauðsmálum, stjórnun og verkefnastýringu
-
Mikill áhugi á að vinna með fólki og efla starfsumhverfi
-
Góð færni í íslensku og ensku
Við bjóðum:
-
Frábært starfsfólk og jákvætt vinnuumhverfi
-
Styttri vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma
-
Ókeypis hádegismat og slökunarherbergi
-
Félags- og heilsutengda viðburði
Travel Connect er ört vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu og leiðandi í Norður Evrópu. Travel Connect rekur átta vörumerki, þar af sjö ferðaskrifstofur og eitt hugbúnaðarfyrirtæki, og styður við þau með allri almennri stoðþjónustu.
Iceland Travel er rótgróið og leiðandi félag í ferðaþjónustu á Íslandi. Starfsumhverfið einkennist af jákvæðni, trausti og virðingu fyrir samstarfsfólki, samfélaginu, birgjum og viðskiptavinum. Hjá Iceland Travel starfar fjölbreyttur hópur af ástríðufullu starfsfólki með víðtæka þekkingu og reynslu í ferðaþjónustu.
Nánari upplýsingar
Sverrir Briem – [email protected]

