Mannauðsstjóri á rekstrar- og mannauðssviði
Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af mannauðsmálum í starf mannauðsstjóra á rekstrar-og mannauðssviði. Mannauðsstjóri sinnir virkri þátttöku, ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur og starfsfólk sviðsins í öllum verkþáttum mannauðsmála, þ.e. í ráðningum, þjálfun og starfsþróun, endurgjöf, kjaramálum, samskiptum, heilsu og öryggi, í samræmi við stefnu Landspítala hverju sinni. Mannauðsstjóri tekur einnig þátt í miðlægum mannauðsverkefnum með rekstrar- og mannauðssviði spítalans.
Leitað er eftir kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir málstað mannauðsmála og spítalans. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Mannauðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs og vinnur náið með öðrum mannauðsstjórum og stjórnendum Landspítala.
Í boði er frábær vinnuaðstaða, fyrsta flokks mötuneyti og stytting vinnuvikunnar. Starfshlutfall er 100% og upphafsdagur starfs samkomulag.