

Mannauðsstjóri
Íslandsbanki leitar að framsýnum og drífandi aðila í stöðu mannauðsstjóra.
Mannauðsstjóri leiðir stefnumótun og framkvæmd mannauðsmála Íslandsbanka og gegnir lykilhlutverki í að styðja við áframhaldandi þróun traustrar og framsækinnar fyrirtækjamenningar, mannauðsferla og starfsumhverfis. Mannauðsmál eru hluti af nýstofnuðu sviði Stefnumótunar og menningar og heyrir mannauðsstjóri undir framkvæmdastjóra sviðsins. Stofnun sviðsins endurspeglar áherslu á aukið samstarf stoðsviða bankans og markvissa mótun fyrirtækjamenningar. Í því samhengi gegnir mannauðsstjóri mikilvægu hlutverki í samvinnu þvert á bankann.
Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að leiða öfluga liðsheild, stuðla að góðum starfsanda og skapa umhverfi þar sem samvinna, framsækni og fagmennska fá að njóta sín. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi búi yfir sterkri samskiptafærni.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála er kostur.
- Haldbær reynsla af mannauðsstörfum.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu mannauðsverkefna.
- Hæfni til að veita stjórnendum ráðgjöf í mannauðstengdum málum.
- Færni og þekking til að tengja mannauðsmál við rekstrarárangur.
- Þekking á vinnumarkaði og kjaramálum.
- Hæfni til að leiða teymi og vera drífandi í starfi.
- Lausnamiðuð hugsun, gagnadrifin nálgun og greiningarhæfni.
Enska
Íslenska