Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Undir vörumerki Icelandia starfa:
Activity Iceland,
Almenningsvagnar Kynnisferða,
Bílaleiga Kynnisferða – Enterprise Rent-A-Car,
Dive.is,
Flybus,
Garðaklettur,
Hópbifreiðar Kynnisferða,
Icelandic Mountain Guides,
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Activity Iceland hefur boðið upp á sérferðir á breyttum bílum og lúxusferðir.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Enterprise Rent-A-Car er stærsta bílaleiga í heimi og starfar hér á landi undir vörumerki Icelandia. Félagið er með um 1.000 bíla í rekstri í langtíma- og skammtímaleigu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Mannauðsfulltrúi
Ferðaskrifstofa Icelandia, er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Ert þú manneskja sem er nákvæm, vill hafa mikið að gera og vinna í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum?
Um starfið
Við viljum hafa starfsánægju að leiðarljósi í okkar daglegu störfum. Í okkar deild er alltaf nóg að gera í líflegu og fjölbreyttu umhverfi. Við leitum að einstaklingi sem hjálpar okkur við að þjónusta starfsfólki og stjórnendur og tryggja að starfsmannatengd gögn séu rétt og áreiðanleg.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri mannauðs og gæða
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Umsjón með tímaskráningarkerfum
-
Gerð ráðningarsamninga og eftirfylgni með undirritun þeirra
-
Skráning, eftirfylgni og skjölun starfsmannatengdra gagna í launakerfi
- Samskipti, móttaka og úrvinnsla beiðna frá starfsfólki og stjórnendum
- Eftirfylgni með starfsánægjukönnunum
- Samskipti við opinberar stofnanir og þjónustuaðila
- Aðstoð við launavinnslu
- Ýmis tilfallandi verkefni t.a.m. þátttaka í undirbúningi viðburða ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Reynsla og menntun sem nýtist í starfi
-
Mjög góð þekking á skrifstofustarfi og tölvuvinnu
-
Framúrskarandi samstarfshæfni og rík þjónustulund
-
Fagmennska, frumkvæði, nákvæmni og metnaður,í vinnubrögðum
-
Mjög góð íslensku-, og enskukunnátta í ræðu og riti
-
Geta til að vinna undir álagi
-
Þekking á bókhaldi, tímaskráningarkerfum eða mannauðskerfum er kostur
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur í hádeginu
- Líkamsræktarstyrkur
- Sálfræðistyrkur
- Styrkur í krabbameinsskoðanir
Auglýsing birt11. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiMicrosoft OutlookWindows
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Þjónustufulltrúi inn- og útflutnings
Frakt
Configuration Specialist
Sidekick Health
Aðalbókari Nespresso á Íslandi
Perroy ehf
Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte
Operations & Logistics Specialist
Nordic Luxury
Þjónustufulltrúi
DHL Express Iceland ehf
Þjónustufulltrúi á skrifstofu Reykhólahrepps
Reykhólahreppur
Öldrunar- og stuðningsþjónusta - Þjónustufulltrúi
Reykjanesbær
Sérfræðingur á sölu- og þjónustusviði
BSI á Íslandi ehf.
Senior Operations Engineer - DCS & Controls
Climeworks
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Verkefnastjóri á framkvæmdadeild
Vegagerðin