
Byggingafélag námsmanna
Byggingafélag námsmanna á og leigir út til námsmanna um 650 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Félagið áformar að byggja um 300 íbúðir til viðbótar á næstu 10 árum. Ennfremur sér félagið um rekstur stúdentagarða Háskólans í Reykjavík þar sem eru yfir 250 íbúðir.
Málari/umsjónarmaður fasteigna
Byggingafélag námsmanna leitar að málara inn í viðhaldsteymi félagsins. Starfið fest í móttöku íbúða við skil leigutaka, yfirferð og mat á ástandi eigna, samskipti við leigutaka og undirbúningi íbúða fyrir næsta leigutaka, þ.m.t. þrif á íbúðum ef á þarf að halda. Málun íbúða, bæði heilmálun og viðgerðir. Eftirlit og umsjón með fasteignum félagsins og minni háttar viðhaldi á fasteignum félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Málun íbúða félagsins, bæði heilmálun og viðgerðir
- Eftirlit með íbúðum og fasteignum
- Samskipti við leigutaka og úttektir íbúða við skil
- þrif og frágangur íbúða til afhendingar fyrir nýja leigjendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla á sviði húsamálunar
- Ökuréttindi
- Jákvætt hugarfar og góðir samskiptahæfileikar
- Rík þjónustulund
- Haldgóð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
bíll, sími, spjaldtölva
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindiSamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)




