Lyfjaval
Lyfjaval
Lyfjaval

Lyfjaval - 100% dagvinna

Lyfjaval leitar að einstaklingi með ríka þjónustulund í 100% dagvinnu í lyfjaverslun okkar í Suðurfelli. Um afgreiðslu- og þjónustustarf er að ræða með vinnutíma frá kl. 9-18 alla virka daga með möguleika á tilfallandi kvöld- og helgarvöktum sé þess óskað.

Starfið er laust frá 1. september

Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf og aðrar heilsutengdar vörur, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.

Lyfjaval er hluti af Dröngum, nýstofnað móðurfélag Orkunnar og Löðurs, Lyfjavals og Samkaupa. Umrædd félög eru með djúpar rætur í þjónustu til viðskiptavina dagvöru, heilsu, orku og þvotti fyrir bílinn um allt land.

Eiginleikar sem við kunnum vel að meta eru:

  • Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf.
  • Áhugi á heilsu og vellíðan
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Ráðgjöf um val á öðrum vörum meðfram lyfjunum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Ábyrgð á innkaupum og birgðastöðu á almennum vörum 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verslunarstörfum er góður kostur
  • Heilbrigðismenntun er kostur
  • Stúdentspróf er vel metið
  • Íslenskukunnátta er mikilvæg
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð
Auglýsing birt23. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurfell 4, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar