Lyfjatæknar í afgreiðsluapótek
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni? Hefur þú áhuga á að vinna í teymi fólks sem brennur fyrir því sem það er að fást við á hverjum degi? Þá gætum við verið með starfið fyrir þig!
Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir að ráða öfluga lyfjatækna með sterka þjónustulund og jákvætt viðmót. Við sækjumst eftir lyfjatæknum sem eru sveigjanlegir, framsæknir og tilbúnir að takast á við ólík verkefni. Um er að ræða tvö störf í afgreiðsluapóteki sem afgreiðir lyf gegn lyfseðlum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á Landspítala starfa um 30 lyfjatæknar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Mikil framþróun er í störfum lyfjatækna á Landspítala og spennandi tímar framundan. Verkefni lyfjaþjónustu eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér að þjónusta sjúklinga á öllum deildum spítalans með afgreiðslu, öflun, blöndun, skömmtun og dreifingu lyfja ásamt faglegri upplýsingagjöf um lyf.