![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/cover/934a3df7-8000-48fb-95a8-4a05542f1523.png?w=1200&q=75&auto=format)
Lyfjafræðingur hjá Lyfju
Viltu starfa með frábærum hópi starfsfólks hjá Lyfju?
Við leitum að lyfjafræðingum í okkar frábæra starfsmannahóp. Lyfja er með apótek um allt land og því ýmis tækifæri í boði. Starfið felst í lyfjafræðilegri þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Þjónusta og frágangur lyfseðla
- Lyfjafræðileg ráðgjöf og upplýsingagjöf til neytenda og annarra starfsmanna um lyf og lyfjanotkun
- Pantanir á lyfjum og frágangur í reseptúr
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- Rík þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veita Anna Sólmundsdóttir, anna@lyfja.is, og Sigrún Erlendsdóttir, sigrunerlends@lyfja.is, á mannauðssviði Lyfju.
Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð23. janúar 2024
UmsóknarfresturEnginn
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)