Lyfja Stykkishólmi - Sala og þjónusta, tímabundið starf
Viltu taka vaktina fram til áramóta?
Við leitum að starfsmanni í afleysingu tímabundið fram til áramóta, með möguleika á áframhaldandi starfi við sölu og þjónustu. Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavinum okkar um kaup á vörum verslunarinnar.Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni
• Almenn afgreiðslustörf
• Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
• Afgreiðsla á kassa
• Afhending lyfja gegn lyfseðli
• Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund
• Áhugi á mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og gott viðmót
• Geta til að starfa undir álagi
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
• Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er frá 12-18 á virkum dögum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1.október 2024
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarne Omar Nielsen, lyfsali Lyfju Stykkishólmi, sími 438 1141 | bjarne@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.