
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 430 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.

Lyfja Spönginni - Sala og afgreiðsla
Við leitum að starfsmanni í afleysingar í Lyfju Spönginni.
Um er að ræða hlutstarf við sölu og afgreiðslu eftir hádegi á virkum dögum. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Ósk Samúelsdóttir, lyfsali í Lyfju Spönginni ([email protected]).
Auglýsing birt22. mars 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Spöngin 33-39 35R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)

Snyrtivöruráðgjafi í Beautybox
Beautybox

Sölumaður hjá Fífa barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Sölumaður í hlutastarf hjá Fífu barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Nettó Hrísalundi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Nettó Aðaltorgi snyrtivörudeild - NÝ VERSLUN Reykjanesbæ
Nettó

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Afgreiðsla í Akureyrarapóteki
Akureyrarapótek ehf.

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu