Lyfja Spöng - Sala og þjónusta
Viltu taka vaktina í Lyfju Spöng?
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í framtíðarstarf í Lyfju Spöng. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík Þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Verslunin er opin frá 10-18:30 virka daga og þarf viðkomandi að geta unnið 2-3 daga í viku til 18 eða 18:30. Aðra daga til 16-17.
Íslensku kunnátta er skilyrði og viðkomandi þarf að vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Ósk Samúelsdóttir, lyfsali Lyfju Spöng í s: 577 3500 | kristjana@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.