Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Smáralind - Sala og þjónusta

Við leitum að starfsmanni í sölu og afgreiðslu í Lyfju Smáralind.

Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun, gott vinnuumhverfi og möguleikar á að þróast í starfi.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á kassa
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími er frá 13-19 alla virka daga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Torfi Pétursson, lyfsali Lyfju

Smáralind í síma 530 5800 | [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt2. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar