Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
Lyfja Setbergi - Sala og þjónusta
Við leitum að starfsmanni í sölu og afgreiðslu í Lyfju Setbergi.
Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun, gott vinnuumhverfi og möguleikar á að þróast í starfi.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími frá 10-18 og annar hver laugardagur 10-16.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ösp Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Setbergi í síma 555-2306 | ingibjorgm@lyfja.is.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing birt26. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Staðarberg 2-4 2R, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)
Kvenkyns sundlaugavörður
Fjarðabyggð
Vöruhús, vöruafhendingar og afgreiðsla
Álfaborg ehf
Afgreiðslufulltrúi / Front Desk Agent
Lava Car Rental
Starfsmaður í Auka- og varahlutaverslun
Toyota
Starfsmaður á Lager
RMK ehf
Reykjanesbær: Leitum að aðila með reynslu af byggingavörum
Húsasmiðjan
A4 Smáralind - Skemmtileg vinna með skóla!
A4
Aukavaktir í Olís Garðabæ
Olís ehf.
Hress og glaður sölumaður
Fylgifiskar ehf
Verslunarstarf Smáratorgi 3
KiDS Coolshop
Tímabundin vinna / Temporary job
Freyja
Þjónar í hlutastarf
Íslenski Barinn