
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 430 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.

Lyfja Lágmúla - Sala og þjónusta
Viltu taka vaktina í Lyfju Lágmúla.Um er að ræða 100% starf í verslun Lyfju. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Um framtíðarstarf er að ræða og þarf viðkomandi að geta byrjað ekki seinna en um miðjan ágúst. Vinnutími er frá 8-16 mánudaga - föstudaga.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali í Lyfju Lágmúla, S: 533-2300 | [email protected]
Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Auglýsing birt5. júní 2025
Umsóknarfrestur25. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Helgarstarf - Dýrabær í Krossmóa, Reykjanesbæ
Dyrabær

Tínslufólk á kvöldvakt
Innnes ehf.

N1 - Reykjanesbær
N1

Aðstoðarverslunarstjóri
Peloton ehf

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Þjónusta og aðstoð í mötuneyti / Service and assistance in a cafeteria
Dagar hf.

Olís Dalvík leitar af kraftmiklum vaktstjóra frá og með 1. september
Olís ehf.

Kjötiðnaðarmaður
Fiskur og félagar ehf.

Afgreiðslufólk óskast í fullt starf og hlutastarf, frá ágúst 2025
Polo

Starfsmaður í timburafgreiðslu - BYKO Suðurnesjum
Byko

Starfsmaður í verslun - Reykjavík
Lífland ehf.

Starfsmaður í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Byko