Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
Lyfja Lágmúla - Hjúkrunarfræðingur
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum hjúkrunarfræðingi í hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla.
Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar sérhæfður hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem sinnir þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað. Starfið felst í ráðgjöf og hjúkrunarþjónustu við viðskiptavini ásamt umsjón með hjúkrunarvörum og almennum afgreiðslustörfum.
Helstu verkefni:
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina á heilsu- og hjúkrunarvörum, einkum vörum sem Sjúkratryggingar taka þátt í að greiða (t.d. þvagleggir, sykursýkisvörur og stómavörur)
- Heilsufarsmælingar (t.d. blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðfitur) ásamt fræðslu og ráðgjöf varðandi heilsufarsmælingar, heilsueflingu og forvarnir til skjólstæðinga og aðstandanda
- Saumatökur og sáraskipti á bráðum og minni sárum ásamt ráðleggingum um sáraumhirðu og umbúðir
- Árstíðabundnar bólusetningar
- Sprautugjöf í vöðva og undir húð
- Umsjón með lager hjúkrunarvara
- Almenn afgreiðslustörf og önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu fyrirtækisins
- Eyrnaskoðun og eyrnahreinsun ásamt einföldum heyrnarskimunum
Opnunartími hjúkrunarþjónustu er alla virka daga frá kl. 8-16.
Nánari upplýsingar um starfið veita Urður G.Norðdahl yfirhjúkrunarfræðingur, urdur@lyfja.is og Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla, elinborg@lyfja.is
Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Auglýsing birt5. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hjúkrunarfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)
Aðstoðardeildarstjóri á Skjóli, blundar í þér stjórnandi?
Skjól hjúkrunarheimili
Hjúkrunarnemi - hlutastarf með skóla í haust
Hrafnista
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista
Sjúkraliðar á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Þreytt á umferðinni? Hjúkrunarfræðingur á Sólvangi!
Sólvangur hjúkrunarheimili
Vesturmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðing í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri Vökudeildar
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sameinaðri endurhæfingardeild K1 og L1 Landakoti
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur
Hamrar hjúkrunarheimili
Umönnun, 80-100% starf - Eir, Hamrar og Skjól
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili