
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.

Lyfja Hólagarði - Sumarstarf
Við leitum að starfsmanni í sumarstarf í Lyfju Hólagarði.
Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun, gott vinnuumhverfi og möguleikar á að þróast í starfi.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er frá 10-18 virka daga og annan hvern laugardag 10-14.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyþór Einar Sigurgeirsson, lyfsali Lyfju Hólagarði í s. 577-2600.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð29. mars 2023
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Olís Borgarnes næturvaktir
Olís ehf Borgarnes Fullt starf

Sumar og framtíðarstörf hjá Olís Dalvík
Olís ehf. Dalvík Sumarstarf (+2)

Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Avis og Budget Reykjavík 12. júní Sumarstarf

Áfylling í verslunum/Sala - Fullt starf
Rolf Johansen & Co. Reykjavík 8. júní Fullt starf

Gestamóttaka - Eyja Guldsmeden hótel
Hótel Eyja ehf. Reykjavík Fullt starf

Þjónustuver
Bílanaust Hafnarfjörður Fullt starf

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
ÍSBAND verkstæði og varahlutir Reykjavík 11. júní Fullt starf

Lava Service Rep. in Reykjavik
Lava Show Reykjavík 12. júní Sumarstarf (+2)

Nettó Glerártorgi Akureyri - Verslunarstjóri
Nettó Akureyri Fullt starf

Reyðarfjörður - starfsmaður
Vínbúðin Reyðarfjörður 19. júní Tímabundið

Hlutastörf hjá Icewear Reykjavík
ICEWEAR Tímabundið (+2)

Þjónustufulltrúi
Lyfjaver Reykjavík Fullt starf
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.