
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.

Lyfja Granda - Umsjón verslunar
Við leitum að umsjónarmanni fyrir Lyfju Granda.
Starfið felst í yfirumsjón með búð og framstillingum auk þess að sinna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Umsjónarmaður ber ábyrgð á að búðin sé ávallt hrein og snyrtileg, tekur á móti vörum, bókar reikninga, fylgist með birgðum og er í miklum samskiptum við starfsfólk vörusviðs.
Hæfniskröfur:
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er frá 8-16 virka daga og þarf viðkomandi að geta hafið störf í lok sumars eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Freydís Selma Guðmundsdóttir, lyfsali Lyfju Granda í síma 512 3770 (freydis@lyfja.is)
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð23. maí 2023
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Fiskislóð 3, 101 Reykjavík
Hæfni
JákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Þjónar - Barþjónar
Three Sixty Bankastræti Reykjavík Hlutastarf

Starfsmaður i verslun
Sport Direct Akureyri Akureyri 16. júní Fullt starf

Lyfja Heyrn - afgreiðsla
Lyfja Reykjavík Sumarstarf (+1)

Borgarnes - tímavinna
Vínbúðin Borgarnes 19. júní Hlutastarf

Sölu og þjónusturáðgjafi, hlutastarf í verslun
Vodafone Akureyri Hlutastarf

Sölufulltrúi helgar // hlutastarf
Húsgagnahöllin Reykjavík Hlutastarf

Bílstjóri/lestunarmaður
Vaðvík Fullt starf

Viltu vinna úti í sumar? Garðaþjónusta
Grænir Bræður Reykjavík Fullt starf (+3)

Aukavinna um helgar
Gæðabakstur Reykjavík Hlutastarf

Þjónustufulltrúi fyrirtækjaþjónustu
Vodafone Reykjavík 19. júní Fullt starf

Blönduós - sumar 2023
Vínbúðin Blönduós 19. júní Sumarstarf

Afgreiðsla á kassa (Helgarstarf)
ELKO Kópavogur 21. júní Hlutastarf
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.