Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Egilsstöðum - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í sumar í Lyfju Egilsstöðum. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið:

Vinnutími er á opnunartíma verslunar eða samkvæmt samkomulagi.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar veitir Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum í síma 471-1273 og [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt13. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kaupvangur 6, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar