
Prima fasteignasala
Við leggjum metnað okkar í að veita öllum viðskiptavinum faglega og persónulega þjónustu, byggða á vönduðum vinnubrögðum og skilvirku verklagi. Við búum að víðtækri reynslu og þekkingu á sölu íbúða- og atvinnuhúsnæðis sem og sölu sumarhúsa.

Löggiltur fasteignasali eða nemi í löggildingarnámi
Prima fasteignasala ehf. er vaxandi og framsækin fasteignasala þar sem fagmennska, traust og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi. Við leggjum ríka áherslu á mannauðinn okkar og leitum nú að drífandi einstaklingum til að styrkja teymið okkar enn frekar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og öflun eigna í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi.
- Ráðgjöf til viðskiptavina, allt frá fyrstu kaupendum til stærri fjárfesta.
- Gerð söluyfirlita, samningagerð og önnur tengd verkefni.
- Þátttaka í uppbyggingu og vexti fasteignasölunnar með öflugu teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding til fasteignasölu eða vera í námi til löggildingar.
- Reynsla af fasteignasölu er kostur en nýútskrifaðir eru einnig hvattir til að sækja um.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og mikill metnaður til að ná árangri.
- Löngun til að starfa í lausnamiðuðu og jákvæðu umhverfi.
Auglýsing birt17. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Esjubraut 49, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
