
Deloitte Legal
Deloitte Legal er öflugur hópur lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga sem hefur áralanga reynslu af lögfræðiverkefnum fyrir stóra sem smáa, og íslenska sem alþjóðlega viðskiptavini, og er leiðandi á markaði þegar kemur að skattaráðgjöf.

Lögfræðingur á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar
Deloitte Legal er framsækin og alþjóðleg lögmannsstofa sem þjónustar fjölbreyttan hóp fyrirtækja í margvíslegum atvinnugreinum á öllum helstu sviðum fyrirtækjalögfræði. Deloitte Legal er jafnframt samstarfsaðili Deloitte á heimsvísu sem samanstendur af 457.000 sérfræðingum og er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar og tengdrar þjónustu.
Deloitte Legal leitar að áhugasömum og metnaðarfullum lögfræðingi í öflugt teymi félagsins, sem samanstendur af hópi lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Hjá Deloitte á heimsvísu starfa að auki yfir 2.500 lögfræðingar, sem saman stefna að því að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Lögfræðiráðgjöf og skjalagerð á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar.
- Lögfræðiráðgjöf við stór sem smá fyrirtæki.
- Samvinna með öðrum ráðgjafateymum, hér heima og erlendis.
- Stuðningur við markaðssókn félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Að lágmarki þriggja ára reynsla af lögfræðistörfum á sviði skatta-, samninga- og félagaréttar og ráðgjafar við fyrirtæki er kostur.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Lestur og skilningur ársreikninga er ákjósanlegur.
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og geta til að tjá sig, í ræðu og riti.
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
