

Lögfræðingar hjá KPMG Law
Lögfræðingar hjá KPMG Law
KPMG Law leitar að metnaðarfullum, lausnamiðuðum og jákvæðum lögfræðingum sem hafa áhuga á fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í framsæknu og faglegu starfsumhverfi.
Við störfum í nánu samstarfi við sérfæðinga KPMG á sviði fjármála, rekstrar og endurskoðunar sem gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar heildstæða og fjölbreytta ráðgjöf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn lögfræðiráðgjöf fyrir viðskiptavini KPMG.
- Samninga- og skjalagerð við framkvæmd og frágang viðskipta.
- Ráðgjöf og þjónusta tengd fyrirtækjarekstri, kaupum, sölum og fjármögnun fyrirtækja.
Hæfniskröfur:
- Meistaragráða í lögfræði.
- Reynsla af viðskipta-, fjármála- og/eða fyrirtækjalögfræði er kostur.
- Umfangsmikil þekking og reynsla af skjalagerð ýmissa fjármálagerninga og veðskjala er kostur.
- Brennandi áhugi á rekstri og fjármálum fyrirtækja.
- Þekking og áhugi á stafrænni þróun og nýrri tækni er mikill kostur.
- Framúrskarandi hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
- Metnaður og geta til að takast á við krefjandi verkefni og vinna undir álagi.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og sterk þjónustulund.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.
KPMG Law ehf.
KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG og ein af leiðandi stofunum á sviði fyrirtækjalögfræði á Íslandi. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og í dag starfa hjá okkur á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og sérfræðinga. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:
- Fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu umhverfi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptalífið og samfélagið í heild.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
- Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og fjölbreyttum velferðarúrræðum.
- KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
- Aðgengi að golfklúbbi með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á [email protected].
Íslenska
Enska

