
Center Hotels
Center Hotels er fjölskyldurekin hótelkeðja til yfir 20 ára.
Hótelin í Center Hotels keðjunni eru 8 talsins, öll staðsett í miðborg Reykjavíkur og bjóða upp á góða þjónustu, notaleg herbergi, veitingastaði, bari, heilsulindir, funda- og veislusali. Hótelin eru:
- Grandi by Center Hotels
- Miðgarður by Center Hotels
- Þingholt by Center Hotels
- Center Hotels Laugavegur
- Center Hotels Arnarhvoll
- Center Hotels Plaza
- Center Hotels Klöpp
- Center Hotels Skjaldbreið
Hjá Center Hotels starfa um 300 manns sem allt er hæfileikafólk á sínu sviði. Starfsfólk okkar býr yfir mismunandi menntun og reynslu en á það sameiginlegt að leggja metnað sinn í að sinna starfi sínu vel og leggja sitt af mörkum við að sinna gestum hótelanna eins vel og hægt er.
Við leggjum metnað okkar í að styrkja og stuðla að því að starfsfólki okkar líði vel í starfi og að þeim bjóðist sá möguleiki að vaxa og dafna innan starfsins og hótelkeðjunnar. Við bjóðum því upp á úrval námskeiða í okkar eigin Center Hotels skóla þar sem boðið er upp á ýmiss konar fræðslu, kennslu og öflugt íslenskunám.
Jafnrétti á vinnustað er okkur hjartans mál og höfum við lagt mikla áherslu á að hafa jafnræði og jafnrétti að leiðarljósi. Við vorum fyrst allra ferðaþjónustufyrirtækja að fá jafnlaunavottun BSI árið 2018 og hlutum við viðurkennningu Jafnvægisvogar FKA árið 2020 og 2021.
Nánari upplýsingar um hótelin okkar er að finna á www.centerhotels.is

LÓA Matur og Vín leitar að öflugum liðsmönnum
LÓA Matur og Vín leitar að öflugum liðsmönnum í hlutastarf fyrir sumarið með möguleika á framtíðarráðningu.
Við erum að leita að:
- Þjónum
- Barþjónum
- Starfsfólki sem getur unnið bæði sal og bar
Við leitum að einstaklingum sem:
- eru jákvæðir og ábyrgir
- geta unnið í hröðu og skemmtilegu umhverfi
- eru sveigjanlegir í starfi og vinnutíma
- hafa áhuga á góðri þjónustu og fagmennsku
- Enskukunnátta er skilyrði
- Íslenskukunnátta er mikill kostur.
Reynsla í veitingageiranum er kostur, en ekki skilyrði fyrir réttan einstakling.
Við höfum áhuga á að byggja upp sterkt teymi til lengri tíma, þó ráðningar séu fyrst og fremst fyrir sumartímabilið.
Um er að ræða 25–50% starf
Skilyrði að viðkomandi sé orðin 20 ára.
Við munum byrja strax að yfirfara umsóknir og boða í viðtöl.
Auglýsing birt28. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Þverholt 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ertu hress og til í tuskið?
Serrano

Assistant Lodge Service Manager
Deplar Farm - Eleven Experience

Experienced waiter full time / part time.
Spice Grill ehf.

Þjónar og Gestamóttaka
Black Sand Hotel

Waiter / Þjónn
Seljalandsfoss Horizons

Vantar auka þjóna á Mathús Garðbæjar
Mathús Garðabæjar

Kokkur/chef
Sel by ÓX

Dubliner óskar eftir Barþjónum í Reykjavík & Kefalvik
The Dubliner Reykjavík

BARÞJÓNN ÓSKAST
ROK

Verslunarstjóri Subway Akranesi
Subway

Við erum að opna í Reykjavík – Taktu þátt og málum bæinn RAUÐann!
Radisson RED Hotel, Reykjavik

Looking for Chefs & Bartenders to work in Egilsstaðir
Frú Nielsen