Liðlegur starfsmaður á þjónustusviði
Samey Robotics er leiðandi fyrirtæki á sviði róbótalausna og leitar að starfsmanni í vaxandi þjónustudeild fyrirtækisins. Helstu verkefni þeirrar deildar eru m.a.
- Viðhald á kerfum og tengdum búaði sem Samey Robotics hefur sett upp í gegnum tíðina.
- Þáttaka í innkaupum og uppsetningu á varahlutum.
- Stjórnun og viðhald á Fanuc vélmennum.
- Búa yfir þekkingu á PLC sem nýtist í villuleit, gangsetningu kerfa og almennar lagfæringar.
- Getað veitt tæknilega ráðgjöf í gegnum síma og notað SECOMEA (Fjartengi búnað).
Starfsmaður þarf að vera:
- Óhræddur við að læra nýja hluti í umhverfi sem tekur stöðugum breytingum.
- Tilbúinn að ferðast til viðskiptavina sem eru staðsettir út um allt land og erlendis (mikið í Noregi).
- Tilbúinn að vinna á starfstöðum hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina
eins og í fiskvinnslu, álverum, matvælaframleiðslum, steypustöðvum o.fl.
- Halda uppi góðum viðskiptasamböndum við viðskiptavini félagsinns.
- Iðnmenntun á rafmagnssviði eða Vélasviði
- Reynsla af sjálvirkni og þjónustu er kostur
- Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Vera jákvæður fyrir ferðalögum