Lýsi
Hjá Lýsi starfar öflugur og fjölbreyttur hópur fólks. Er það markmið Lýsis að gera starfsfólk þátttakendur í velferð fyrirtækisins og skapa þannig sterka liðsheild sem vinnur að sama marki.
Lýsi er rótgróið fyrirtæki sem framleiðir heilsuvörur úr sjávarafurðum og flytur út vörur til yfir 70 landa. Starfsemin byggir á samhentum og jákvæðum mannauði sem hefur gæði og þjónustu að leiðarljósi.
Lýsi leggur metnað í að taka vel á móti nýju starfsfólki og hlúa að menntun og þjálfun þess svo þau geti leyst störf sín af hendi með sóma og líði vel í starfi. Lýsi vill ráða og halda hæfu starfsfólki sem notar uppbyggileg samskipti á vinnustaðnum, þar sem jöfn laun og jafnrétti eru lögð til grundvallar.
Menning Lýsis einkennist af heiðarleika, jákvæðni, ábyrgð og virðingu.
Leitum að starfsmanni í mælingar
Lýsi leitar að starfsmanni í fullt starf við mælingar á rannsóknastofu gæðaeftirlits.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um hér á Alfreð. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum svarað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og frágangur á sýnum
- Mælingar á sýnum
- Frágangur mæliniðurstaðna
- Kvarðanir og eftirlit á mælitækjum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af mælingum eða gæðaeftirlitsstörfum kostur
- Nákvæmni og vandvirkni
- Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
- Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Hjólageymsla
- Sturtuaðstaða
Auglýsing birt28. nóvember 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Íslenska
GrunnfærniNauðsyn
Staðsetning
Fiskislóð 5-9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniRannsóknirVandvirkniVinnsla rannsóknargagna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)