TACTICA
TACTICA

Kerfisstjóri

Ert þú þaulvanur kerfisstjóri sem hefur mikla reynslu af uppsetningu og rekstri tölvu- og netkerfa?

Þá erum við að leita að þér í teymið okkar í Fjörðinn!

Kerfisstjóri Tactica kemur til með að sinna innleiðingu og rekstri á tölvu- og netkerfum viðskiptavina ásamt því að veita ráðgjöf í umbótarverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Innleiðing, uppsetning og rekstur á Microsoft lausnum

Innleiðing, uppsetning og rekstur á netkerfum

Innleiðing, uppsetning og rekstur á tölvukerfum

Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina

Greining og úttektir á umhverfum viðskiptavina

Ráðgjöf og áætlanagerð varðandi úrbætur

Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni í þjónustumálum

Uppsetning og skjölun kerfishandbókar á umhverfi viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af Microsoft 365

  • Þekking og reynsla af Windows Server og Active Directory er kostur

  • Microsoft vottun er kostur

  • Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri net- og tölvukerfa
  • Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni

  • Gagnrýnin- og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði og hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Strangheiðarlegur heitur matur í hádeginu
  • Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing birt28. febrúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fjarðargata 15A, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar