
Leitum að framúrskarandi móttöku- og þjónustufulltrúa hjá Hjartavernd
Hjartavernd leitar að jákvæðum og einstaklega þjónustulunduðum einstaklingi í fullt starf við móttöku og þjónustu.
Starfið felst fyrst og fremst í að taka vel á móti þeim sem sækja þjónustu Hjartaverndar, meðal annars á sviði myndgreiningar og áhættumats hjarta- og æðasjúkdóma, auk símsvörunar og almennrar upplýsingagjafar.
Móttakan er fyrsti viðkomustaður þeirra sem til okkar leita og starfsmaðurinn því mikilvægur hluti af þeirri upplifun sem fólk fær af fyrirtækinu. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum við fólk og leggur metnað í hlýlega, faglega og lipra þjónustu.
• Taka á móti þeim sem sækja þjónustu Hjartaverndar og leiðbeina þeim eftir þörfum
• Símsvörun og almenn upplýsingagjöf
• Afgreiðsla og önnur verkefni tengd móttöku
• Samskipti og samvinna við starfsfólk
• Ýmis önnur verkefni tengd daglegri starfsemi
• Afar rík þjónustulund og jákvætt viðmót
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hlýleg og fagleg framkoma
• Áreiðanleiki, samviskusemi og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði og hæfni til að bregðast vel við ólíkum aðstæðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Mjög góð kunnátta í íslensku og góð kunnátta í ensku
Reynsla af móttöku, þjónustustörfum eða heilbrigðisþjónustu er kostur.
Við bjóðum fjölbreytt starf í faglegu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem góð þjónusta og jákvæð upplifun þeirra sem til okkar leita er í fyrirrúmi.
Viðkomandi verður mikilvægur hluti af daglegri starfsemi Hjartaverndar og gegnir lykilhlutverki sem andlit fyrirtækisins út á við.
Íslenska
Enska







