Leikskólinn Ösp
Leikskólinn Ösp

Leikur og skapandi starf

Við óskum eftir starfsmanni í hlutastarf/tímavinnu eftir hádegi í leikskólann Ösp, sem er þriggja deilda leikskóli í Reykjavík með 52 börn. Leikskólinn er lítill og heimilislegur og starfsemi skólans leggur mikla áherslu á auðugt málumhverfi, umhverfismennt, málörvun og fjölmenningu. Gildi leikskólans eru gleði, vinátta og virðing.

Hefur þú gaman af börnum og leik þá er þetta starfið fyrir þig. Fullkomið hlutastarf með skóla, fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi, þar sem enginn dagur er eins og sköpuð eru ný ævintýri á hverjum degi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf eins fljótt og unnt er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Reynsla af vinnu með börnum á leikskólaaldri æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur með börnum á öllum deildum skólans.
Sinnir þeim verkefnum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna.
Auglýsing birt10. janúar 2022
Umsóknarfrestur17. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Iðufell 16, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar