Rjúpnahæð
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda.

Við erum sex deilda leikskóli í Salahverfinu, við erum í stöðugri þróun og leggjum áherslu á krefjandi og skemmtilegt starf með börnunum.

Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði með lýðræði að leiðarljósi. Við vinnum með hugtök sem snúa meðal annars að lýðræði, gleði, virðingu, sjálfsbjargarviðleitni, sjálfstæði o.fl.

Starfið felur í sér almenna kennslu í skemmtilegu umhverfi sem er í stöðugri þróun. Faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í leik og starfi með börnunum sem byggir á frumkvæði og teymisvinnu starfsmanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ábyrgð, áreiðanleiki og jákvæðni
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
  • Stytting vinnuvikunnar - er að hluta notuð í lokanir milli jóla- og nýárs, dymbilviku og vetrarfríum.
  • Frítt fæði
Auglýsing stofnuð6. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Rjúpnasalir 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar