
Deildarstjóri - afleysing
Leikskólinn Reynisholt auglýsir afleysingu í starf deildarstjóra við Gvendargeisla 13, 113 Reykjavík. Afleysingin er frá 8.ágúst 2019 til 7.ágúst 2020
Reynisholt er fjögurra deilda leikskóli við Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik þar sem lögð er áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara eða sambærileg menntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta











