

Leikskólinn Álfatún óskar eftir deildarstjóra
Leikskólinn Álfatún óskar eftir að ráða leikskólakennara í deildastjórn
Leikskólinn Álfatún er 5 deilda leikskóli á besta stað í Fossvoginum. Í leikskólanum eru 79 börn á aldrinum 1 – 6 ára.
Við leitum að öflugum kennara í stöðu deildarstjóra sem fyrst vegna forfalla ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling, eða einstakling með reynslu af starfi með börnum.
Áherslur okkar eru málrækt, hreyfing, útivera og skapandi starf í gegnum leik. Áhugi okkar snýr að því að auka lýðræði, skapandi hugsun og menningu. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, umhyggju, jákvæð samskipti, gleði og lausnamiðaða hugsun.
Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Kópavogsbæjar.
Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://alfatun.kopavogur.is/
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi deildarinnar og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Ber ábyrða á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
- Góðir samskiptahæfileikar
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Frumkvæði í starfi
- Gott vald á íslensku er skilyrði
- Reynsla af vinnu með börnum
- Styttri vinnuvika, stytting er að hluta til notuð í vetrar-, jóla og páskafrí
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska










