Garðabær
Garðabær
Garðabær

Leikskólinn Akrar óskar eftir starfsmanni í stuðning

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir starfsmanni til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra.

Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi.

Viltu vera með í okkar liði?

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Að sinna barni með sérþarfir
•    Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
•    Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
•    Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg
•    Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
•    Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
•    Góð samskiptahæfni
•    Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum

Fríðindi í starfi

•    Á Ökrum er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-,         páska- og jólafrí
•    Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna vinnustyttingar starfsfólks
•    Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
•    Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
•    Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
•    Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
•    Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
•    Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019. 

Auglýsing stofnuð17. apríl 2024
Umsóknarfrestur2. maí 2024
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar