Leikskólinn Ævintýraborg Nauthólsveg - mötuneyti
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti leikskólans Ævintýraborg við Nauthólsveg í Reykjavík.
Vinnutími er frá kl. 7:45 til 15:45 alla virka daga.
Starfið felst í undirbúningi fyrir morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu, afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi.
Hæfniskröfur:
• Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
• Menntun sem nýtist í starfi æskileg.
• Góð íslenskukunnátta skilyrði.
• Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og lausnamiðuð hugsun skilyrði.
Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upplýsingum um reynslu/menntun og fyrri störf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Fyrirspurnir um starfið og umsóknir berist í gegnum Alfreð-ráðingakerfið.
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið.