

Leikskólastjóri, Leikskólinn Tröllaborg
Skagafjörður óskar eftir að ráða í tímabundna stöðu leikskólastjóra skólaárið 2026-27 vegna afleysinga.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur reynslu og þekkingu á leikskólastarfi. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á leikskólastarfi, skólaþróun, stjórnun og forystu. Um er að ræða tímabundna árs afleysingu í 100% starfshlutfalli skólaárið 2026-27.
Leikskólinn Tröllaborg er tveggja deilda leikskóli sem rekinn er í tveimur byggðakjörnum, Hofsósi og Hólum. Í leikskólanum eru 30 börn á aldrinum 1-5 ára. Leikskólinn Tröllaborg er SMT leikskóli og heilsueflandi leikskóli. Á næsta skólaári verður áhersla lögð á innleiðingu Heillaspora. Við sem í leikskólanum störfum vinnum eftir framtíðarsýn menntastefnu Skagafjarðar og aðalnámskrá leikskóla. Aðaláhersla er á leikinn, læsi, skapandi starf og félagslega færni, með það að markmiði að hver einstaklingur fái notið sín sem best. Kjörorð leikskólans er: Leikum saman og lærum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita skólanum faglega forystu og móta stefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá leikskóla.
- Leiða og bera ábyrgð á rekstri, þjónustu og daglegri starfsemi leikskólans.
- Hafa forystu um og bera ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
- Að leiða samstarf starfsfólks, foreldra og leikskólans af yfirvegun og virðingu.
- Að halda uppi jákvæðum samskiptum og farsælli lausn ágreinings þegar þörf er á.
- Að stuðla að öruggu, faglegu og virku samstarfi í samræmi við farsældarlög.
- Eftirlit með húsnæði og leiksvæði skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla skilyrði.
- Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar leikskólastarfs æskileg.
- Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.
Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, [email protected], s. 849 5135.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins: www.skagafjordur.is. Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Íslenska










