Leikskólinn Hlíð
Leikskólinn Hlíð

Leikskólastjóri

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Hlíð lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.

Hlíð er sex deilda leikskóli í grónu hverfi í Hlíðunum. Skólinn hefur tvær starfsstöðvar — við Engihlíð fyrir eldri börn og við Eskihlíð fyrir yngri börn. Starfsstöðin við Engihlíð er nú í endurnýjun og er á áætlun að endurgert húsnæði verði tilbúið í apríl 2027.

Einkunnarorð skólans eru virðing – vinátta – velíðan. Lögð er áhersla á að börnunum líði vel, að þau séu félagslegafær og skilji mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Námskrá skólans byggir á því að börn læri í gegnum leik og hann er óendanleg uppspretta nýrra möguleika, námstækifæra og gleði.

Hér er frábært tækifæri fyrir leikskólastjóra til að byggja upp öflugt lærdómssamfélag — bæði fyrir börnin og starfsfólkið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða,aðalnámskrár
  • og stefnu Reykjavíkurborgar
  • Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni
  • Standa vörð um farsæld, velferð og nám barna skólans
  • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum
  • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deilaábyrgð á velferð barna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf
  • Leikskólakennaramenntun er æskileg
  • Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í leikskóla æskileg
  • Knslureynsla á leikskólastigi
  • Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun
  • Lipurð og hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.
  • Áhugi og/eða reynsla af aleiða þróunarstarf
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engihlíð 6, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar