Austurkór
Austurkór
Austurkór

Leikskólastjóri

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Austurkór

Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli á yndislegum stað við Vífilstaðahlíð. Í leikskólanum eru 100 börn á aldrinum eins – sex ára. Skólastarfið einkennist af flæðandi dagskipulagi, námslotum byggðum á gildum skólans, lýðræðislegum starfsaðferðum og útinámi. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, liðsheild, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.

Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðafólk og menntasvið.

Einkunnarorð Austurkórs eru samvinna, lýðræði og atorka.

Heimasíðan okkar er: https://austurkor.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans sem deilir verkefnum og ábyrgð til starfsmanna í samræmi við skólanámskrá
  • Rekstrarleg ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar.
  • Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
  • Ábyrgð á foreldrasamstarfi.
  • Upplýsingamiðlun til deildarstjóra og menntasviðs Kópavogsbæjar.
  • Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsmanna og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana æskileg
  • Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar